Sveitafélagið Ölfus hefur auglýst tillögu að breyttu aðalskipulagi á hluta Hengils svæðisins, á Ölkelduhálsi/Bitru.
Baráttufólk um verndun svæðisins hefur sent vandað plakat í öll hús í Ölfusi, með litmyndum af því fagra og hrikalega landslagi sem þar er að finna.
Leyfi ég mér að styðjast við þetta plakat við þessi skrif mín. (sjá einnig www.hengill.nu )
Hyggst Sveitafélagið Ölfusi breyta útivistarsvæðinu þarna í IÐNAÐARSVÆÐI, svipuðu því og nú þegar má sjá á Hellisheiðinni við Hellisheiðarvirkjun. Heitavatnsrörin sem "fegra" umhverfi vegarins þar, fara ekki fram hjá neinum, sem þar á leið um. Allt er sundurgrafið og ömurlegt að aka niður af heiðinni og sjá þetta blasa við.
Á síðunni www.hengill.nu má finna tilbúið bréf sem fólk getur afritað og sent til Ölfusinga, en tími til athugasemda rennur út 13. maí n.k. og verður að senda bréfið með landpósti, ekki tölvupósti.
Hvet ég alla þá sem vænt þykir um landið okkar að leggja því lið. Nú er lag að hafa áhrif á gang mála.
Baráttukveðja,
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
kvitt
Þorsteinn Valur Baldvinsson, 11.5.2008 kl. 12:27
Takk fyrir að bloggvináttuna. Við erum samherjar í umhverfismálunum. Ég er þegar búin að senda mótmæli og einnig fjölskylda mín.
kveðja
Ragnheiður
Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir, 11.5.2008 kl. 13:35
Búin að senda mín mótmæli.
Steingerður Steinarsdóttir, 12.5.2008 kl. 18:49
Gott að vita af ykkar framlagi, nú er bara að sjá hverju fram vindur.
Linda Samsonar Gísladóttir, 12.5.2008 kl. 21:48
búinn líka að senda
Ólafur fannberg, 15.5.2008 kl. 20:19
Stend með þér...
Guðni Már Henningsson, 15.5.2008 kl. 22:27
líka ég !
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.5.2008 kl. 14:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.